Um okkur

divi-cart-pro-about-1
divi-cart-pro-about-2

Go on / Bátabúnaður

Ríflega 40 ára reynsla

GO-ON bátabúnaður er vefverslun sem býður upp á breitt vöruúrval fyrir bátaeigendur. Verslunin er í eigu Trefja ehf. sem hóf eigin bátaframleiðslu árið 1982. Allar götur síðan höfum við í Trefjum þjónustað bátaeigendur á ýmsan hátt, séð þeim fyrir varahlutum, annast viðhald og viðgerðir og útvegað bátalyftu svo eitthvað sé nefnt.

Við höfum á að skipa starfsfólki sem hefur áralanga reynslu af bátasmíði. Bátavörurnar eru valdar af sérfræðingum okkar og hafa reynst vel í okkar eigin framleiðslu.

Árið 2026 keyptu Trefjar verslunina GO-ON sem sérhæfði sig í sölu á búnaði fyrir sjávarútveg, landbúnað og iðnað. Hún hafði verið starfrækt frá árinu 2009.

Ekki hika við að senda okkur fyrirspurn ef þú finnur ekki vöruna sem þú leitar að.

sala@batabunadur.is